Legal notice
Netkaup
Um netkaup á vef Martölvunnar gilda lög um Húsgöngu- og fjarsölusamninga og Lög um rafræn viðskipti. Martölvan starfar í anda siðareglna um netviðskipti frá Samtökum verslunar og þjónustu.
Öll samskipti þar sem greiðslukortaupplýsingum er miðlað á vef eru dulkóðuð með SSL.
Söluveð
Kaupandi veitir Martölvunni, söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr. 75/1997 um samningsveð. Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/reikningi þessum. Veðið er til tryggingar kröfu Martölvunnar til alls endurgjalds sem greint er í samningi/reikningi þessum, ásamt vöxtum og kostnaði.
Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis Martölvunnar. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur Martölvan leitað fullnustu kröfu sinnar með því að krefjast nauðungarsölu, án undangengins dóms eða aðfarar.
Reglur sem gilda um netviðskipti
Athugið að rafrænn fjarsölusamningur er jafngildur skriflegum samningi en kaupandi hefur þó rétt til að falla frá kaupunum, án kostnaðar, í allt að fjórtán daga frá móttöku vörunnar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
- Vörunni sé skilað til fyrirtækisins án áfallins sendingarkostnaðar.
- Innsigli á hugbúnaðarpökkum og á búnaði má ekki vera rofið.
- Búnaðurinn sé óskemmdur og í upprunalegum umbúðum.
- Að ekki sé um sérpöntun eða sérsniðna vöru að ræða.