Terms of service

Viðskiptaskilmálar Martölvunnar

Verð sem birt er á vefverslun Martölvunnar er venjulegt staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram (s.s. sértilboð). Vörur og/eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega. Annar greiðslumáti en skv. meðfylgjandi greiðsluseðlum eða upplýsingum telst ófullnægjandi. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast gjaldkera Martölvunnar ehf. innan 30 daga frá útgáfudegi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga.

Ábyrgð

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð. Sé um neytendakaup að ræða gilda reglur kaupalaga um ábyrgðartíma vegna galla. Ef vara er keypt vegna atvinnustarfsemi er ábyrgðartími 12 mánuðir. Ef ábyrgðartími er annar en að framan greinir er þess sérstaklega getið á sölureikningi. Á ábyrgðartíma eru lagfæringar Martölvunnar án endurgjalds á bilunum, sem kunna að verða á búnaði, enda megi rekja þær til framleiðslu- og /eða efnisgalla.
Ábyrgð nær til vélbúnaðar og grunnuppsetningar stýrikerfis samkvæmt stöðlum Martölvunnar. Ábyrgð á hugbúnaði nær eingöngu til geymslumiðla (gagnadiska) og handbóka sem fylgja hugbúnaði.

Ábyrgðartakmarkanir

Ábyrgð nær ekki til vinnu eða aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma, ef óskað er eftir viðgerð utan auglýsts opnunartíma eða utan verkstæðis Martölvunnar.

Ábyrgð nær hvorki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna Martölvunnar á vélbúnaði eða uppsetningu stýrikerfis, né til kostnaðar vegna endurheimtingar gagna eða enduruppsetningar notendahugbúnaðar.

Endurhlaðanlegar rafhlöður eru rekstrarvara og teljast ekki hluti vélbúnaðar, t.d. fartölva. Ábyrgðartími þeirra er 12 mánuðir, óháð ábyrgðartíma viðkomandi vélbúnaðar, nema annars sé getið í sölureikningi.

Kaupandi á engar kröfur á hendur Martölvunni vegna eiginleika hins keypta sem hann varð var við, mátti verða var við eða mátti sjá við notkun, af leiðbeiningum, lýsingum eða öðrum tæknilegum upplýsingum er fylgdu hinu keypta.

Martölvan ber í engu tilviki ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru óbeinu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna.

Þurfi Martölvan að greiða kaupanda bætur í tengslum við samning þennan getur kaupandi aldrei farið fram á greiðslu bóta sem eru hærri en sem nemur kaupverði hins keypta skv. samningi þessum.

Ábyrgð á búnaði fellur niður ef:

  • Verksmiðjunúmer hefur verið fjarlægt
  • Bilun stafar af því að búnaðurinn hefur verið tengdur við ranga spennu
  • Tjón verður sem stafar af rangri meðferð, misnotkun eða slysni
  • Um eðlilegt slit vegna notkunarbúnaðar er að ræða
  • Viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en starfsmönnum Martölvunnar
  • Átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af
  • Ábyrgðarinnsigli hefur verið rofið (á við um búnað sem hefur ábyrgðarinnsigli)