Refund policy

Vöruskil

Vöru er einungis hægt að skila í vöruafgreiðslu Martölvunnar og ber kaupandi ábyrgð á að kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil. Vöru fæst aðeins skilað ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  • Varan er sannanlega gölluð
  • Upprunalegar umbúðir eru óskemmdar
  • Allar handbækur, fylgihlutir og fylgigögn eru í upprunalegu ástandi
  • Varan er algjörlega í upprunalegu ásigkomulagi án sjáanlegra skemmda
  • Innan við 30 dagar eru frá sölu vörunnar
  • Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað.
  • Vöru á kaup-, fjármögnunar- eða rekstrarleigu fæst aðeins skilað í samræmi við ákvæði viðkomandi samnings.